top of page
Íþróttabandalag Akraness hefur fest kaup á búnaði til beinna útsendinga á netinu. Búnaðurinn er í umsjón ÍATV sem býður upp á beinar útsendingar fyrir öll aðildarfélög íþróttabandalagsins. Útsendingin fer fram á YouTube rás ÍATV og verður síðan aðgengileg þar ef áhugi er á því.
Hafi aðildarfélag áhuga á að streyma íþróttaviðburðum eða öðrum viðburðum félaganna í gegnum ÍATV er best að hafa samband við forsvarsmenn ÍATV með góðum fyrirvara. Þeir eru:
Örn, sími 699-6507
Heiðar, sími: 864-5545
Ekki er hægt að fá búnaðinn nema meðlimur ÍA TV sé til staðar.
bottom of page